Útivist


Action tekur að sér að skipuleggja action ferðir fyrir hópa.

Action hefur undanfarin ár skipulagt göngu- og hlaupaferðir yfir Fimmvörðuhálsinn fyrir hópa sem telja allt upp í 250 manns. Action hefur séð um heildarskipulagningu á þessum ferðum, þar með talið rútuferðir, leiðsögn og eftirlit í göngu/hlaupi, sameiginlega aðstöðu í Þórsmörk. Aðstaðan felur í sér tjaldstæði, partýtjöld fyrir hópin, borð og bekki, grill og annan borðbúnað.

Action hefur einnig skipulagt 1 dags hlaupaferðir yfir Laugaveginn með svipaðri skipulagningu.

Action tekur að sér að skipuleggja göngu- og/eða hlaupaferðir fyrir ýmsa hópa.

Ferðir á vegum Action hafa verið mjög eftirminnilegar og skemmtilegar og telja viðskiptavinir ferðirnar hafa verið hápunkt sumarsins.