Bootcamp útilegan 2010!!!!
ATH!
Það er opið fyrir umferð inn í Þórsmörk. Básar er eins og vin í eyðimörkinni, grænt gras, græn tré og ekkert nema hamingja.
Ferðin verður farin inn í Þórsmörk á meðan aðstæður leyfa, ef ekki verður leyfilegt að fara í mörkina þá verður bara farið á stað PLAN B.
Skráningu lýkur formlega á föstudaginn, gætum framlengt fram á sunnudag. ATH allir velkomnir með.
Það verður þvílík upplifun að keyra inn í Mörkina í gegnum ösku og koma inn í grænt Strákagil, þið viljið ekki missa af þessu.
Ferðin verður haldin helgina 26júní-27júní. Þetta er ferð sem þú vilt ALLS EKKI missa af!!!
Lagt verður af stað með rútu frá Reykjavík eldsnemma á laugardagsmorgni inn í Bása. Frá Básum verður síðan gengið upp á Morinsheiði, þaðan upp að gosstöðvum þar sem hægt er að skoða hraunið og sprungurnar í návígi. Þaðan er gengið niður framhjá hraunfossinum og niður í Þórsmörk aftur. Gangan er um 15 km. Gera má ráð fyrir að gangan taki 4-8 tíma. Leiðin er virkilega falleg og skemmtileg og hentar öllum. Gist verður í Básum, Þórsmörk um nóttina. Svo er það bara að grilla og mynda stemningu á laugardeginum, aðstaða verður á staðnum að vanda auk skemmtunar. Svo er haldið heim á sunndudagshádegi.
Leiðin er ný þetta árið og verður hún merkt.
Verð er 8700 kr á mann. Þá innifalið rúta, tjaldstæði og partýtjald, borð og bekkir, grill og borðbúnaður á staðnum, kaldur á kantinum, gos, snakk o.fl.
Skráning er til föstudagsins 18.júní og greiðsla jafngildir skráningu. ATH engar endurgreiðslur
Reikningsnúmer: 313-26-100100 Kennitala: 300780-3189
Kveðja Sveinbjörn
www.action.is
Gosganga á Fimmvörðuháls
Við stefnum á að ganga upp að eldgosinu á Fimmvörðuhálsi 1. apríl næstkomandi
Farið verður í Bása, Þórsmörk með rútu frá Reykjavík kl 13:15
Gangan upp tekur ca. 2-2,5 tíma. Ath þetta er vetrarganga, góður búnaður og reynsla æskileg, veðrið getur verið fljótt að breytast. Stefnt er að vera á gosstað svona upp úr 19:00 og vera til kannski 21:00, gaman að sjá gosið í myrkri. Svo er gengið niður og rútan leggur af stað í bæinn kl 24:00
Koma í Reykavík upp úr 2-3 leytið afaranótt föstudags.
ATH ALLIR sem koma með eru á EIGIN ábyrgð, góður búnaður er nauðsynlegur.
Fjöldi 20 til 40 manns hámark.
Þeir sem hafa áhuga sendið póst á sveinbjorn@action.is
Innifalið:
Rútuferð, göngufélagar og vonandi eldgos
Boðið verður upp á Viper orkudrykk fyrir gönguna.
Kveðja
Sveinbjörn, Ásta og Gunnar Dór
Fimmvörðuhálsferð Bootcamp
Komin er dagsetning fyrir hina árlegu Fimmvörðuhálsferð Bootcamp.
Ferðin verður helgina 26-27 júní.
Síðasta helgin í júní eins og undanfarin 3 ár.
Farið verður með rútu frá Reykjavík í Skóga, hópurinn mun ganga og hlaupa þaðan yfir í Þórsmörk
Gist verður í Strákagili og verður Action með aðstöðu þar fyrir göngufólk. Á staðnum verður veislutjöld með stólum og borðum, grill fyrir alla, borðbúnaður, gos og snakk.
Á sunnudeginum er svo haldið til baka til Reykjavíkur.
Ferðin verður að venju ógleymanleg og má enginn alvöru Bootcampari eða góðunnandi missa af ferðinni.
Ferðin er skipulögð af Action fyrir Bootcamp
Vinnuhreysti Marel
Fyrsta Vinnuhreysti ársins verður haldin fyrir starfsmenn Marel.
Keppnin fer fram 17. apríl næstkomandi í höfuðstöðvum Marel.
Skráning stendur yfir.
action.is opnar
action.is vefsetrið hefur formlega verið opnað.
www.action.is
Með baráttuhug og góðum kveðjum,
Starfsfólk Action