Vinnuhreysti
- VINNUHREYSTI ER ÁSKORUN Á FYRIRTÆKIÐ ÞITT -
Vinnuhreysti er frábær skemmtun og hópefli sem byggir á heilbrigðri þrekkeppni á milli starfsmanna innan fyrirtækja. Keppnin er erfið og ögrandi en jafnframt þannig að allir starfsmenn geta tekið þátt. Keppnin er skemmtileg og hvetjandi og skilur mikið eftir sig.
Þátttakendur í Vinnuhreysti fá aukinn metnað, sjálfstraust og sjálfsöryggi. Vinnuhreysti hvetur starfsmenn til reglulegrar hreyfingar og heilbrigðari lífstíls. Afraksturinn er ánægðari, heilbrigðari og afskastameiri starfsmenn.
Vinnuhreysti opnar augu þátttakenda og hvetur þá til að ná lengra og takast á við erfið verkefni hvort sem er í daglegu lífi eða í starfi. Með þátttöku í Vinnuhreysti geta starfsmenn sett sér mælanleg markmið og bætt sig í samræmi við þau.
- TAKTU ÁSKORUNINNI OG FÁÐU ÞITT FYRIRTÆKI TIL AÐ SKRÁ SIG Í VINNUHREYSTI -