Af hverju Vinnuhreysti?
- VINNUHREYSTI ER JÁKVÆÐ UPPLIFUN-
Markmiðið með Vinnuhreysti er fyrst og fremst skemmtun fyrir starfsmenn, aukin samstaða meðal starfsmanna og að þeir tileinki sér heilbrigða og jákvæða lífshætti. Allir starfsmenn geta tekið þátt hvort sem er í einstaklingskeppni eða liðakeppni. Reynslan af Vinnuhreysti er sú að starfsmenn á öllum aldri hafa tekið þátt óháð líkamlegu formi þeirra, enda hugurinn og ánægjan sem fylgir keppninni það sem hvetur starfsmenn áfram.
Vinnuhreysti
- eflir samvinnu milli starfsmanna
- hvetur til samstöðu meðal starfsmanna
- eflir liðsandann í fyrirtækinu
- skapar jákvætt starfsumhverfi
- bætir líkamlega og andlega heilsu starfsmanna
- eykur metnað starfsmanna
- eykur samskipti milli starfsmanna
- eflir frammistöðu starfsmanna
Vinnuhreysti hvetur starfsmenn til heilbrigðari lífshátta og að setja sér ný og ögrandi markmið.
- HEILBRIGT STARFSFÓLK, BETRA STARFSFÓLK -