Hvað er Vinnuhreysti?
- VINNUHREYSTI ER FYRIR ALLA -
Vinnuhreysti er þrek- og þolkeppni sem er haldin fyrir fyrirtæki og starfsmenn þess. Allir starfsmenn geta tekið þátt í Vinnuhreysti óháð aldri og líkamlegu formi. Aðalatriðið er að hafa gaman af keppninni og undirbúningnum!
- BRAUT MEÐ 10 FRÁBÆRUM KEPPNISGREINUM
Vinnuhreysti er braut sem samanstendur af 10 keppnisgreinum sem einstaklingar og lið fara í gegnum á sem stystum tíma. Greinarnar 10 eru teknar hver á eftir annarri í einum rykk. Greinarnar má sjá hér til hliðar. Til skemmtunar og hópeflingar sjá keppendur um dómgæslu og tímatöku hjá hverjum öðrum undir eftirliti keppnishaldara. Þyngdir og/eða útfærslur eru lagaðar að hverjum og einum starfsmanni svo allir geta tekið þátt.
- EINSTAKLINGS- OG LIÐAKEPPNI
Keppt er í einstaklingskeppni karla og kvenna þar sem einstaklingurinn fer í gegnum allar 10 greinarnar sjálfur.
Í liðakeppninni eru 5 einstaklingar, óháð kyni, saman í hverju liði og hver einstaklingur tekur 2 samliggjandi greinar. Hefð er fyrir því að lið keppi í búningum og eru verðlaun gefin fyrir flottustu búningana (bolina).
- VEGLEG VERÐLAUN Í BOÐI
Verðlaunagripir eru gefnir fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum flokki. Síðan eru mjög vegleg úrdráttarverðlaun fyrir alla sem taka þátt í keppninni.
- UNDIRBÚNINGUR
Vinnuhreysti krefst undirbúnings hvort sem starfsmenn ákveða að keppa í einstaklings- og/eða liðakeppninni. Gott er að starfsmenn byrji að æfa sínar greinar tímanlega og fari yfir reglurnar sem fylgja hverri grein. Mælt er með því að einstaklingar og lið prófi að taka rennsli í brautinni. Öll hreyfing og hollt mataræði fyrir keppni getur haft mikið að segja um útkomuna!
- EKKI LÁTA ÞIG VANTA -