Umsagnir
Auðunn Gunnar Eiríksson , Mannvit
Við hjá Mannvit héldum okkar fyrsta Vinnuhreysti í maí 2008 og höfum haldið tvær keppnir síðan. Vinnuhreysti hefur mælst mjög vel fyrir og núna síðast þegar hann var haldinn tóku hátt í 50 starfsmenn þátt í einstaklings og liðakeppni. Vinnuhreysti er mjög skemmtileg keppni þar sem allir geta keppt hvort sem menn eru bara að keppa við sjálfan sig eða að reyna að vera fyrirtækjameistarinn.
Sjálfur tók ég þátt í fyrirtækjakeppninni 2008 og sá þá að ég þyrfti að bæta form mitt og byrjaði að æfa af meiri krafti en áður og hef ég sjaldan verið í betra formi en ég er í dag. Við hér hjá Mannvit mælum með þessari keppni fyrir starfsmenn þar sem þetta eykur áhuga starfsmanna á almennri hreyfingu og einnig skapar þetta skemmtilega stemmingu á vinnustaðnum og því fyrirtaks hópefli líka. Ég mæli líka eindregið með þessari keppni þar sem hún hvetur mann til aðkoma sér í betra form og sé ég sko ekki eftir að hafa prófa þetta fyrir ári síðan og hef tekið þátt í öllum þremur keppnunum sem við höfum haldið
Axel Rúnar Eyþórsson, Mannvit
Ég hef tvisvar tekið þátt í Vinnuhreysti Mannvits. Í fyrra skiptið hafði ég ekki verið búinn að æfa í langan tíma, enda var þetta frekar gert fyrir skemmtunina og félagsskapinn í vinnunni. Keppnin var harðari en ég átti vona á en svaka skemmtileg og myndaðist flott stemmning á staðnum og voru allir sammála um að þetta væri eitthvað sem ætti að endurtaka að ári.
Þar sem niðurstaðan í keppninni var ekki ásættanleg, allavega af minni hálfu, ákváðu við nokkrir samstarfsmenn að byrja í Boot Camp til að laga líkamlegt form. Ári seinna var bætt við liðakeppni sem heppnaðist rosalega vel og auðveldaði það við að fá fólk til að keppa og verð ég að segja fyrir mína parta að þetta er einn skemmtilegasti viðburður sem ég hef tekið þátt í með vinnunni
Elísabet Rúnarsdóttir, Mannvit
Ég verð nú að viðurkenna það að fyrst leist mér ekkert á að taka þátt í þessari fyrirtækjakeppni. Ég er nú ekki beint þessi steríótýpa sem stunda kraftlyftingar og tekur þátt í svona þrautabrautum, en fyrir ári lét ég plata mig út í þetta og var með kvíðahnút í maganum í nokkra daga áður en stóri dagurinn rann upp.
Þegar kom að því að setjast á hjólið og þrautirnar tóku við ein af annarri, kikkaði inn gamla góða keppnisskapið og hnúturinn í maganum hvarf. Þetta var gríðarlega skemmtilegt og það kom ekki neitt annað til greina en að klára þessar 10 greinar sama hversu langan tíma það tæki, enda var það eina markmiðið sem ég setti mér.
Sigurvíman sem lagðist yfir mann þegar seinasta þrautin kláraðist var æðisleg og varð til þess að ég var fljót að skrá mig næst þegar keppnin var haldin. Seinna árið tók ég þátt í liðakeppninni, það var líka ótrúlega skemmtilegt og hristi hópinn vel saman. Gaman var að sjá ótrúlegasta fólk mæta og spreyta sig á þrautunum. Mikil hvatning og persónulegir sigrar áttu sér stað og voru menn fyrst og fremst mættir með það markmið að skemmta sér. Frábær hópefling og góð áskorun.
Fríða Magnúsdóttir, Mannvit
Ég vissi ekki hvað beið mín hjá Mannvit á Laugaveginum þegar ég var send þangað. Samstarfsmenn mínir skráðu mig í Vinnuhreysti. Ég er á miðjum aldri, aldrei verið í líkamsrækt og reyki sagði ég aum, nú þá er komin tími til að breyta því, og þeir stóðu fast á sínu drengirnir. Ég hlýddi. 3 vikum seinna mætti ég í Boot Camp og tók þátt í keppninni og ég brosi enn að hafa þorað að mæta. Það sem beið mín var leið að nýjum lífstíll, æfi 3x í viku og er reyklaus. Vinnuhreysti í mínu tilfelli, lottóvinningur lífs míns.